Heim / Ryksuguvélmenni

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni

Proscenic Floobot X1 snjallt ryksuguvélmenni sem tæmir sig sjálft. Frí heimsending.

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmennið er loksins komið til Íslands. Snjallt ryksuguvélmenni sem hefur slegið í gegn. Vann til Red dot verðlauna 2023.

  • Hleðslustöðin er útbúin ryksugupoka sem dugar í allt að 60 daga.
  • UV ljós í ryksugupokahólfi fyrir sótthreinsun.
  • Útbúið PathPro™ fjarlægðarnemum sem skynja svæðið og teikna upp kort.
  • Útbúið moppu sem víbrar allt að 3.000 sinnum á mínútu fyrir betri þrif.
  • Frábær fyrir dýrahár.
  • Getur ryksugað og moppað samtímis.
  • Hægt að stýra með appi og Alexu.
  • Mikill sogkraftur, 3000Pa og 3200mAh rafhlaða.
  • Nemur teppi.

 

Til á lager og tilbúið til afhendingar.

79.992 kr. 99.990 kr.
20% afsláttur
Magn

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmennið tæmir sig sjálft

 

 

 

Ryksuguvélmennið tæmir sig sjálft í hleðslustöðina eftir hverja notkun svo ekki þarf að tæma það daglega líkt og flest önnur ryksuguvélmenni. Skipta þarf um ryksugupoka á um 30-60 daga fresti í hleðslustöðinni, fer eftir stærð húsnæðis. Ryksugupokahólfið er útbúið UV ljósi til að sótthreinsa hólfið.

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

3000Pa sogkraftur

 

Proscenic Floobot X1 ryksugar á hæstu stillingu með 3000Pa sogkrafti. Það þýðir að Floobot X1 ræður við að ryksuga upp allt það helsta sem fellur á gólfin á heimilinu þínu.

Moppar með þrýstingi og víbrar allt að 3.000 sinnum á mínútu

 

Proscenic Floobot X1 er útbúið moppu sem víbrar 3.000 sinnum á mínútu. Floobot X1 moppar einnig með þrýstingi sem eykur gæði þrifa. Hægt er að velja um 3 mismunandi stillingar á vatnsmagni í moppunni.

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmennið er útbúið PathPro™ laser skynjurum

PathPro™ tæknin gerir ryksuguvélmenninu kleift að teikna upp gagnvirkt kort af rýminu. Tæknin velur bestu þrifaleiðina. Ryksuguvélmennið er aðeins 7,4 cm á hæð sem þýðir að það kemst undir mörg húsgögn sem önnur hærri ryksuguvélmenni komast ekki undir.

Hægt að setja upp sýndarveggi

Í appinu er hægt að setja upp sýndarveggi til að takmarka aðgang Floobot X1 að einhverju tilteknu svæði. Þetta er mjög hentugt t.d. ef þú ert með viðkvæman hlut á gólfinu sem þú vilt ekki að ryksuguvélmennið komist að eða vilt loka fyrir aðgang að ákveðnu herbergi. Einnig er hægt að stilla að ryksuguvélmennið geti farið inn á ákveðið svæði til að ryksuga en megi ekki fara þangað ef það er að moppa.

Ath. Aðeins er hægt að tengja Proscenic Floobot X1 við 2,4Ghz Wifi.

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Nemur teppi

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmennið er útbúið teppaskynjara. Ryksuguvélmennið nemur þegar það fer á teppi og eykur þá sjálfkrafa sogkraftinn fyrir betri þrif. Ef ryksuguvélmennið er að moppa skynjar það einnig teppi og fer þá ekki á það til að bleyta teppið ekki.

Hvað fylgir með Proscenic Floobot X1?

1. Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni
2. Hleðslustöð sem tæmir ryksuguvélmennið
3. Leiðbeininga bæklingur
4. Moppuklútur
5. Hliðarbursti 
6. Moppuhaldari sem víbrar
7. Ryk- og vatnshólf fyrir ryksuguvélmenni
8. HEPA sía
9. Ryksugupoki
10. Hleðslusnúra
11. Fjarstýring
12. Auka moppa
13. Auka hliðarbursti
14. Auka HEPA sía
15. Auka ryksugupoki
Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni

Proscenic Floobot X1 ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Frí heimsending
2 ára ábyrgð
Skilaréttur
14 daga skilaréttur