Ultenic T10 hefur slegið í gegn út um alla Evrópu sem og hér á Íslandi. Eitt öflugasta ryksuguvélmenni sem völ er á.
Til á lager og tilbúið til afhendingar. Frí heimsending.
Ryksuguvélmennið tæmir sig sjálft í hleðslustöðina eftir hverja notkun svo ekki þarf að tæma það daglega líkt og flest önnur ryksuguvélmenni. Skipta þarf um ryksugupoka á um 60 daga fresti í hleðslustöðinni.
Í appinu er hægt að setja upp sýndarveggi til að takmarka aðgang Ultenic T10 að einhverju tilteknu svæði. Þetta er mjög hentugt t.d. ef þú ert með viðkvæman hlut á gólfinu sem þú vilt ekki að ryksuguvélmennið komist að eða vilt loka fyrir aðgang að ákveðnu herbergi. Einnig er hægt að stilla að ryksuguvélmennið geti farið inn á ákveðið svæði til að ryksuga en megi ekki fara þangað ef það er að moppa. Þetta hentar þeim mjög vel sem hafa mottur á gólfinu hjá sér. Þá er hægt að setja sýndarvegg utan um mottuna, stilla hann þannig að ryksuguvélmennið ryksugi mottuna en fari ekki á hana þegar það moppar gólfin.
Ultenic T10 getur ryksugað allt að 250 fermetra í silent mode. Ef húsið þitt er stærra en það þá fer ryksuguvélmennið sjálft í hleðslustöðina, endurhleður sig og heldur svo áfram verkinu þar sem frá var horfið.
Ultenic T10 ryksugar á hæstu stillingu með 3000Pa sogkrafti. Það þýðir að T10 ræður við að ryksuga upp allt það helsta sem fellur á gólfin á heimilinu þínu.
Ultenic T10 er með 280ml ryktank og 300ml vatnstank í einum og sama tankinum. Því er hægt að ryksuga og moppa í einu. Aðeins þarf að setja vatn á tankinn og moppuna undir. Að sjálfsögðu er einnig hægt að ryksuga eða moppa í sitthvoru lagi.
Hægt er að raddstýra Ultenic T10 ryksuguvélmenninu með því að tengja það við Alexu eða Google assistant.
Ultenic T10 styður geymslu á tveimur kortum sem hentar einstaklega vel fyrir heimili sem eru á tveimur hæðum.
Í appinu er hægt að tímasetja þrif fram í tímann. Hægt er að stilla þrifin á ýmsa vegu. Hægt er að láta Ultenic T10 þrífa ákveðin svæði á ákveðnum tíma, í stakt skipti eða alltaf á sama tíma á sama degi.
Ath. Aðeins er hægt að tengja Ultenic T10 við 2,4Ghz Wifi.
Hægt er að velja um mismunandi þrifakerfi í appinu. Hægt er að láta þrífa allt svæðið, smá hluta af svæðinu t.d. þar sem eitthvað hefur farið á gólfið, hægt er að þrífa einstök herbergi, láta vélina moppa og fleira. Einnig er hægt að stýra vatnsmagni í moppu þegar Ultenic T10 ryksugvélmennið moppar.
Ultenic T10 ryksuguvélmennið er aðeins 9,8 cm hátt. Það kemst því undir flest rúm, sófa og húsgögn á heimilinu. Það getur klifrað yfir allt að 2cm hindranir. Ultenic T10 kemst því auðveldlega á milli herbergja þó að það sé þröskuldur á milli. Ryksuguvélmennið er útbúið fallskynjurum, því er engin hætta á að Ultenic T10 fari fram af stiganum eða detti niður.
Ultenic T10 ryksuguvélmennið skynjar sjálfvirkt þegar það fer á milli mismunandi gólfefna, af parketi t.d. yfir á mottu eða teppi. Það eykur þá sogkraftinn sjálfvirkt til að ryksuga teppið, fer síðan sjálfvirkt aftur á fyrri stillingu þegar það fer af teppinu aftur.
Ultenic T10 ryksuguvélmennið
Hleðslustöð sem tæmir ryksuguvélmennið
Hleðslutæki
Fjarstýring
2x ryksugupokar
Auka HEPA sía
Auka hliðarbursti
2x moppuklútar
Verkfæri til að hreinsa hár úr burstum