Heim / Ryksuguvélmenni

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni

Kynningartilboð - 30% afsláttur.

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni. Snjallt ryksuguvélmenni sem tæmir sig sjálft.

  • Hleðslustöðin er útbúin ryksugupoka sem dugar í allt að 60 daga.
  • Útbúið 360° Lidar fjarlægðarnemum sem skynja svæðið og teikna upp kort.
  • Frábær fyrir dýrahár.
  • Getur ryksugað og moppað samtímis.
  • Hægt að stýra með appi og Alexu.
  • Mikill sogkraftur, 4200Pa, og stór rafhlaða, 3200mAh, svo notkunin getur verið allt að 200 mínútur á hverri hleðslu.

Til á lager og tilbúið til afhendingar.

62.993 kr. 89.990 kr.
30% afsláttur
Magn

Proscenic Q8 Max tæmir sig sjálft

 

 

 

Ryksuguvélmennið tæmir sig sjálft í hleðslustöðina eftir hverja notkun svo ekki þarf að tæma það daglega líkt og flest önnur ryksuguvélmenni. Skipta þarf um ryksugupoka á um 7 vikna fresti í hleðslustöðinni.

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Hægt að setja upp sýndarveggi

Í appinu er hægt að setja upp sýndarveggi til að takmarka aðgang Q8 Max að einhverju tilteknu svæði. Þetta er mjög hentugt t.d. ef þú ert með viðkvæman hlut á gólfinu sem þú vilt ekki að ryksuguvélmennið komist að eða vilt loka fyrir aðgang að ákveðnu herbergi. Einnig er hægt að stilla að ryksuguvélmennið geti farið inn á ákveðið svæði til að ryksuga en megi ekki fara þangað ef það er að moppa. Þetta hentar þeim mjög vel sem hafa mottur á gólfinu hjá sér. Þá er hægt að setja sýndarvegg utan um mottuna, stilla hann þannig að ryksuguvélmennið ryksugi mottuna en fari ekki á hana þegar það moppar gólfin.

Ath. Aðeins er hægt að tengja Proscenic Q8 Max við 2,4Ghz Wifi.

Stór 3200mAh rafhlaða sem getur ryksugað í allt að 200 mínútur og 250m2

 

Proscenic Q8 Max getur ryksugað allt að 250 fermetra í lægstu stillingu. Ef húsið þitt er stærra en það þá fer ryksuguvélmennið sjálft í hleðslustöðina, endurhleður sig og heldur svo áfram verkinu þar sem frá var horfið.

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

4200Pa sogkraftur

 

Proscenic Q8 Max ryksugar á hæstu stillingu með 4200Pa sogkrafti. Það þýðir að ryksuguvélmennið ræður við að ryksuga upp allt það helsta sem fellur á gólfin á heimilinu þínu.

Moppar og ryksugar í einu

ProscenicQ8 Max er með 350ml ryktank og 250ml vatnstank í einum og sama tankinum. Því er hægt að ryksuga og moppa í einu. Aðeins þarf að setja vatn á tankinn og moppuna undir. Að sjálfsögðu er einnig hægt að ryksuga eða moppa í sitthvoru lagi.

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Hægt að tengja við Alexu og Google assistant

Hægt er að raddstýra Proscenic Q8 Max með því að tengja það við Alexu eða Google assistant.

Geymir allt að 5 kort

Proscenic Q8 Max styður geymslu á fimm kortum sem hentar einstaklega vel fyrir heimili sem eru á mörgum hæðum.

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar

Minni hávaði

Nýhönnun á Proscenic Q8 Max hefur það í för með sér að það eru minni hávaði en áður þegar það ryksugar eða aðeins 65db.

Hvað fylgir með Proscenic Q8 Max?

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmennið

Hleðslustöð sem tæmir ryksuguvélmennið

Hleðslutæki

2x ryksugupokar

Auka HEPA sía

Auka hliðarbursti

2x moppuklútar

Verkfæri til að hreinsa hár úr burstum

Leiðbeiningabæklingur

Proscenic Q8 Max ryksuguvélmenni Auka Upplýsingar
Frí heimsending
2 ára ábyrgð
Skilaréttur
14 daga skilaréttur